Þar sem bloggstríðið á milli þeirra Maríu Bergar og Gvends (graða) er ekki að gera sig, höfum við Eydísarnar Hulda og Eva tekið að okkur að segja nokkur orð.... um hana Maríu! Múhahahahahahahahahahahahahaha!!!!!
Eins og flestir vita, þá er María Berg stórt tónlistar frík sem er í lúðrasveit... en það hefur ekkert með málið að gera hér, bara koma því að.
Þegar María var lítill bjó hún á Lambeyri sem er hinum megin í firðinum á móti Tálknafirði. Það var lítið um félagsskap og þurfti hún víst að finna sér hluti til að skemmta sér við, t.d. að tala við bangsana sína sem voru vinir hennar(ó já!) og senda flöskuskeyti út í heim, aðalega til Skotlands.
It will not break, It will not break..IT BROKE!
María Berg og Sigríður Etna eru þekktar að vera bestustu vinkonur og einnig svoldið... tja, vitlausar og skelfilega auðtrúa! Þegar þær voru litlar, eða yngri, trúðu þær að það væri svartur maður alltaf að elta þær! Þær tóku þá t.d. upp á því að týna upp alla miða sem þær fundu úti og reyna raða þeim saman í skilaboð frá svarta manninum(nei, þetta er ekki djók... sjálf Etna sagði okkur frá þessu). Einn daginn þegar þær voru einar heima hjá Sigríði að reyna að finna út skilaboðin, kom ský fyrir sólu og þær héldu strax að þær hefðu séð svarta manninn og hlupu því út með miklum látum og hittu þar Hrafnhildi, Ölmu og Kristjan... og eru þau öll yngri en þær, höfum það á hreinu!!!! Eftir að hafa útskýrt fyrir krökkunum hvað hafði gerst, þá ákváðu þau að hitta á veikann blett (auðtrúa, vægast sagt) og lugu að þeim að þau hefðu séð svarta manninn!! ...svo skrifðu þau skilaboð í snjóinn og fengu þær til að trúa að þessi svokallaði svarti maður hefði skrifað þetta!! (How stupid can you get?)
Fold dear, fold..you fold..
Það er fátt sem Mæja litla (og Sigríður minni) gera ekki fyrir peninga, þegar þær fara út í garð hjá mér, Eydísi Huldu og honum Ólafi bróðir mínum, sem borgaði þeim eitthvað um 1000 kr eða meira til að fara út í garð í niða myrkri... við erum að tala um það að þær sáu ekki neitt, þær voru með símana sína til að lýsa niður á jörðina þar sem þær... létu plata sig út í það að TÝNA UPP HUNDASKÍT !!!! ...talandi um að láta vaða yfir sig!! 
Að lokum verður það að koma fram að eigandi þessarar síðu er nörd. Hún eyddi nefnilega ekki öllum æskuárunum í að vera vitlaus með Sigríði og Eydísi Huldu, ónei – heldur spilaði hún skák! Mhm..skák! Og jújú, þetta versnar..hún var góð í því. Way to be cool man – way to be cool.
Við ætlum ekki að hafa þetta lengra í bili, en það er bara eins fallegt að sumir fari að vera aktívari hérna á þessu blessaða bloggi.
María, þetta ætti að kenna þér að bloggleysi borgar sig ekki – og það er ekki gáfulegt að láta fávita fá lykilorðin sín.
Toot de la Fruit!!
80s x2 